Einar og Tryggvi í útlandinu
20.01.2008 18:48:22 / yktvirad

Ónefnd færsla

ÚÚÚÚFFFFFF! fyrsta skólavikan búin og þrátt fyrir þreytuna er ég mjög sáttur við allt saman.

Bekkurinn ætlaði að fara út á lífið á föstudaginn til að hittast og kinnast betur. Átti að byrja á Hooters að éta og svo fara á einn írskann stað sem er mjög vinsæll hérna meðal námsmannana hérna en þar sem að ég var svo ógeð þreyttur eftir vikuna ætlaði ég að powernappa aðeins áður en ég færi út og ætlaði mér að sofa í 1-2 tíma sem að endaði í 7 tíma svefni og ég vakna klukkan 3 um nóttina og ýkt ósáttur en angu að síður fullur af orku eftir blundinn og ætla að tékka á liðinu hvar það væri og þá var síminn orðinn batteríislaus og ég finn ekki millistykki fyrir ammerísku innstungurnar þannig að ég varð bara að bíta í það súra og fer bar aað horfa á sjónvarpið þar sem ég gat ekki sofnað aftur fyrr en klukkan 7 en var mjög sáttur daginn eftir eiturhress og óþunnur :)

Í dag ætluðum við svo að fara í fenjabátaferð til að skoða krókódíla en svo er bara hörku rigning, rok og 14 stiga hiti þannig að við urðum bara að fresta því þangað til veðrið verður betra og það verður nægur tími til að gera það seinna, var samt farinn að hlakka mjög til þessarar ferðar en það verður bara skólabókalestur í staðinn.

ætla að reyna að taka einhverjar myndir ef ég get munað eftir að kaupa batterí í myndavélina en það koma myndir inn fyrr en síðar

kveðja úr kulda riggningarokinu


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 04:05:15 / yktvirad

Skólabyrjun

Þá er skólinn loksins byrjaður eftir mjög svo langa bið og fram að þessu hefur allt verið mjööög fínt, einn kennarinn virkilega eeelskar hvað hvað fagið hans (flug eðlisfræði) er sniðug og verður spenntur eins og lítill krakki þegar hann er að seigja einhverju geggjað eðlisfræðilega sniðugum hlutum og svo svo verður hann ógeðslega eðlilegur aftur á nóinu (mjög erfitt að lýsa því án þess að get leikið það;) og seigir hverja söguna á fætur annari frá hans starfsferli hjá US Navy og sem kennari á MD 80 ofl ofl.

Veðurfræði og Instrument kennarinn er geðveikt skemmtilegur 70+ ára hvíthærður kall fyrrverandi flugmaður fyrir kanadíska flugherinn í 25 ár og svo flakkað á milli flugfélaga í einhver 20 ár og er algjörlega steríótípan af flugmönnum eins og venjulegt fólk sér þá fyrir sér(eins og gaurinn í "kapteininn" myndinni sem tekur af sér gyftingahringinn þegar hann fer í flugferðir og telur sig æðri en guð;) og reitir af sér hvern brandarann á fætur öðrum, klúra sem venjulega og gerir kennslutímana mun auðveldari að sitja.

Hinir kennararnir eru líka mjög skemmtilegir, hver á sinn hátt en ekkert frásögum færandi eins og hinir 2, flest allir eru þeir hættir að fljúa og bara komnir í kennsluna til að hafa eitthvað að gera og miðla kunnáttu sinni

hef ekkert meira að seigja í bili sem er frásagnavert en þið megið endilega skrifa eða commenta ef það er eitthvað skemmtilegt að gerast heima :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 04:07:15 / yktvirad

Helgin

Ég fór með Pétri herbergisfélaga mínum frá N-írlandi út á lífið á föstudaginn á írskann bar sem er mjög vinsæll hérna og hittum 2 íslendinga sem að eru með okkur í bekk og með þeim voru nokkrir aðrir íslendingar sem að eru búnir að vera hérna lengur og fórum með þeim í eftirpartí sem að einn dani sem að er búnir að vera hérna í svoldinn tíma og leigja hérna hús sem er geggjað stórt með sundlaug og bílskúr á 1500 dollara (væri alveg til í að komast í einhvern svona pakka 8) ) og fórum að spila synda og svo póker og ég vann alveg helling 8) (tapaði samt aðeins meira ;) )

Daginn eftir var bara slappað af og fórum á kfc sem að var óóógeðslegt (held að þetta land sé eins og flugvél, það verður allt sem er gott mikklu verra á bragðið þegar að maður er kominn um borð;).

Svo byrjar skólinn á morgunn og spennan alveg í hámarki, held samt að það verði ekki mikið gert í lærdómnum en við fáum allt dót og bækur og allur frítími tekinn af okkur í leiðinni

kv, Einar


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 04:45:35 / yktvirad

Loksins!!!

Jæjja þá er maður loksins kominn á áfangastað og það er óóógeðslega þægilegt, búinn að öllu sem skiptir máli og bara að bíða eftir að skólinn byrji á mánudaginn.

Ferðin hingað niðureftir gekk ágætlega, þegar ég kom á sanford lenti ég í hörku langri bið eftir að eftirlitsgæjarnir voru búnir að skoða og viðurkenna visa-ið mitt og töskufæribandið var hætt að ganga þegar ég loksins fekk að fara út og það síðastur af öllum, fekk svo leigubílstjóra sem hafði búið á íslandi með pabba sínum sem var að vinna á baseinu sem þá var og hét :S (svoldið spes)

Morguninn eftir leigði ég mér bíl og keyrði niður til Naples sem tók geggjað langann tíma vegna þess að það var búið að loka hraðbrautinni í einhverja 150 km ótaf ógeðslega stórum árekstri og eitthvað en komst á leiðarenda, svoldið seint samt þannig að ég var að fara á hótel fyrst. Ætlaði svo að fara út og finna méreitthvað að éta en fann í leiðinni pawn búllu sem ég gat keypt mér flying v epiphone (gítar) í mjög góðu ástandi á 17 000 ísk

Fór svo í skólann í dag og fekk þær upplýsingar sem ég þurfti og fekk íbúðina og er núna búinn að koma mér ágætlega fyrir, verð síðan að nota næstu daga hérna til að læra á þetta pláss hérna því svo byrjar skólinn á fullu á mánudaginn og þá seigja þeira að það verði enginn tími til að gera neitt annað en læra og borða næstu 12 vikur og svo koma prófin :|

nenni ekki að gera nokkurn skapaðann hlut lengur í bili þannig að ég ætla að láta þetta bara gott heita í dag.

Kveðja Einar


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 15:08:12 / yktvirad

Steinar

ég var bara að þvo á mér hendurnar.

Kv.
Tryggvi

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 18:06:39 / yktvirad

Ein mynd komin og við í svíþjóð

Jæja við erum komnir í svíþjóð og búnir að vera í nokkra daga þó að engar færslur hafi komið lengi erum við báðir á lífi.
Fyrsta myndin frá ferðinni er kominn inn undir myndaalbúm og er hun gastronomist stór af því að ég kann ekki að hafa hanna minni. en það er auðveldlega hægt að leysa það með risastórum skjá.
Við erum búnir að taka einn klifurdag hérna og Gunnar er kominn til Einars.
Við erum líka búnir að vera að vinna í klifurveggnum hjá honum einari og er hann orðinn ýkt nettur og klifurhæfur.
Héna er síðan ein önnur myndsem er örlítið minni og er frá svíþjóð

Hilsen
Tryggvi


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 19:38:18 / yktvirad

interlaken

erum komnir i interlaken subbu leido vedur (en a samt ad batna med hverrri sekundu sem lidur) en atlum ad vera herna i alltof marga daga, langar alla heim nuna en atlum samt ad pina okkur afram utaf red bull air race sem verdur 14. og 15. og halda heim a leid i standandi traukara party sem verdur vegna heimkomu okkar i svitjod.

 kv. party party


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 19:28:34 / yktvirad

allt ad gerast

Nuna er vedrid ordid fint og utlit fyrir godann klifurdag a morgun og hinn. ta verdur haett i ölinu og farid i magnesium karbonat.
sidasta kvöld akvadum vid ad fara a local veitingastad og fa okkur eitthvad annad en borgara ad eta. tar var i bodi sniddsel eda steik vid fengum okkur djupsteikt sniddzel sem var ansi vont og vorum sidan skammadir fyrir ad klara ekki matinn og attum fótum okkar fjör ad launa svo ad vid yrdum ekki bardir med kökukefli.
i kvöld eldudum vid okur hinsvegar nudlusupu a nyja primusnum algjört hnossgaeti............................................................................................................................................not
getur vel verid ad vid skellum inn myndum her af okkur allavegana er kortalesari herna a tolvunni. vid erum bara svo hvitir ennta ad vid(3min eftir) getum ekki farid ad setja myndir inn alveg strax.

En nuna erum vid ad fara i tyskt sveitaparty mikid gaman.

Hilsen
Tryggvi 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.07.2007 15:08:04 / yktvirad

komnir til frankenjura

Komum í gjaír til frankenjura klukkan 8 um morguninn eftir 1100 kílómetra keyrslu um nóttina, heeeeeeellings erfidi og drullu leidinlegt vedur. atludum ad tjalda strax og vid komum úr ferjunni í puttgarden en fyrsta tjaldstaedid sem vid fundum var klukkan 1 um nóttina vid hannover og var ad sjálfsögdu lokad tannig ad tad eini kosturinn sem vid höfdum var ad keyra alla leidina og sofa tegar vid vaerum daudir. svo fundum vid ad lokum tjaldstaedi eftir mjööööög mikla leit og ordnir über pirradir á tjaldskiltaleysi tjódverjans og nádum ad leggja okkur ádur en vid faerum ad koma okkur fyrir og finna rétta tjaldstaedidog koma okkur vel fyrir, fórum sídan tegar vid vöknudum í klifurbúd sem vid fundum um nóttina og fengum hellings leidbendingar og upplýsingar um tjald- og klifursvaedi sem vid göaetum leitad ad daginn eftir. svo vöknudum vid í morgunn eftir gódann 14 tíma svefn og héldum áfram í leit ad nýju tjaldstaedi sem vid erum loksins búnir ad finna og búnir ad koma okkur fyrir og aetlum ad vera hér um óákvedinn tíma eda fer eftir vedri tar sem tad á ad batna um helgina og helst vonandi tannig restina af ferdinni.

Einar


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 16:17:29 / yktvirad

ferðaplan

Ég og Einar G. erum sumsé að fara í road trip um nokkur lönd í evrópu. á morgun flýg ég til köben þar sem Einar pikkar mig upp á flugvellinum og höldum við síðan fljótlega niður til Þýskalands og reynum eitthvað að klifra fer aðallaega eftir veðri hvort við höngum þar eða ekki en annar ætlum við líka að kíkja í alpana. Mamma hans Einars ætlar að lána okkur bíl og þakka ég henni kærlega fyrir það.
Ferðin er ekki alveg plönuð og við höfum ekki hugmynd hvenar við komum aftur.

Tryggvi

» 4 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 16:11:12 / yktvirad

1 dagur í brottför

Þessi síða er til að lækka símakosnað okkar. Þannig að þeir sem eru gríðarlega áhugasamir um að fylgjast með okkur geta kikt hér inn og vonandi náum við allavegana einni færslu á viku.
Annars hef ég alltaf átt mjög erfitt með að skrifa blog, sértaklega þegar ég er erlendis en sjáum til.
Tryggvi


» 1 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill